Man Utd vill Ait-Nouri og hefur líka áhuga á Nkunku - Fulham og Leicester vilja fá Ferguson lánaðan - Dyche með fullan stuðning
banner
   þri 26. nóvember 2024 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Newcastle berst við Liverpool um sóknarmann Bournemouth
Mynd: Getty Images

Antoine Semenyo, sóknarmaður Bournemouth, hefur spilað vel undir stjórn Andoni Iraola og frammistaða hans er farin að vekja athygli stærri félaga.


Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Newcastle áhuga á að fá hann í sínar raðir í janúar en liðið hefur lengi verið í leit að hægri kantmanni.

Newcastle mun hins vegar líklega ekki kaupa leikmenn nema aðrir yfirgefi félagið.

Semenyo er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allar stöður fremst á vellinum. Liverpool hefur einnig verið orðað við þenann 24 ára gamla Englending.


Athugasemdir
banner
banner
banner