Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   sun 11. júní 2017 08:00
Magnús Már Einarsson
Vítaskytta Íslands í dag - Taktu þátt og styrktu gott málefni
Frá keppninni í fyrra.
Frá keppninni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Þrír efstu þátttakendurnir í fyrra ásamt Gunnari Nielsen markverði FH.
Þrír efstu þátttakendurnir í fyrra ásamt Gunnari Nielsen markverði FH.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Í dag stendur Fótbolti.net fjórða árið í röð fyrir vítakeppni þar sem krýnd verður vítaskytta Íslands árið 2017.

Keppnin hefst á Eimskipsvellinum (Þróttarvelli) klukkan 16:30 á en klukkan 18:45 fer fram landsleikur Íslands og Króatíu í Laugardalnum. Áætlað er að vítakeppninni ljúki tímanlega fyrir landsleikinn.

Skráning í keppnina fer fram á Þróttarvelli og hefst hún klukkan 16:00.

Þátttökugjald í vítaspyrnukeppninni er 1000 krónur en allur ágóði rennur í ferð fyrir Vildarbörn Icelandair. Vildabörn Icelandair eru sameiginlegt átak Icelandair og viðskiptavina til stuðnings veikum börnum og fjölskyldum þeirra.

Sigurvegarinn í keppninni fær gjafabréf frá Icelandair en um er að ræða flugmiða fyrir tvo til Evrópu. Þá fær sigurvegarinn gjafabréf frá adidas og úr frá 24 Iceland. Þrír efstu þáttakendurnir fá allir bolta frá adidas.

Hægt verður að kaupa sig aftur inn í keppnina eftir nokkrar umferðir fyrir hærra verð ef þú dettur út. 3000 krónur kostar að koma inn í 3. umferð, 5000 í 5. umferð og 10 þúsund kostar að koma inn í 7. umferð. Sá peningur rennur einnig í ferðina fyrir Vildarbörn Icelandair.

Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni en í fyrra tóku um það bil 300 manns á öllum aldri þátt.

Keppt verður á fjögur mörk til að byrja með til að keppnin gangi hraðar. Þegar nær dregur úrslitum verður síðan keppt á eitt mark.

Öflugir markverðir standa vaktina í keppninni en þegar styttist í úrslitastund kemur fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson í markið. Þannig sitja allir þátttakendurnir í úrslitunum við sama borð.

Taktu þátt í skemmtilegri keppni og styrktu gott málefni um leið!

Smelltu hér til að sjá viðburðinn á Facebook

Sjá einnig:
Myndir: Arnar Steinn er vítaskytta Íslands (2014)
Umhyggja fékk 242 þúsund krónur eftir vítaspyrnukeppnina (2014)
Myndaveisla: Albert Guðmundsson varð vítaskytta Íslands (2015)
Vildarbörn fengu 406 þúsund eftir vítaspyrnukeppnina (2015)
Vildarbörn fengu 368 þúsund eftir vítaspyrnukeppnina (2016)
16 ára gamall varnarmaður vítaskytta Íslands árið 2016
Myndaveisla: Vítaskytta Íslands 2016
Vildarbörn fengu 368 þúsund eftir vítaspyrnukeppnina (2016)
Athugasemdir
banner
banner