Hollenska félagið Ajax er að íhuga að leggja fram tilboð í Nuno Tavares, leikmann Arsenal á Englandi.
Þessi 24 ára gamli vinstri bakvörður var keyptur til Arsenal frá Benfica árið 2021 en aðeins spilað eina leiktíð með enska félaginu.
Síðustu tvö tímabil hefur hann verið á láni hjá Marseille og Nottingham Forest.
Hann lék aðeins átta deildarleiki með Forest á síðustu leiktíð en meiðsli settu strik í reikninginn.
Sky Sports segir frá því að Ajax sé að íhuga að leggja fram tilboð í Tavares á næstu vikum.
Arsenal er opið fyrir því að selja portúgalska varnarmanninn sem á eitt ár eftir af samningi sínum.
Athugasemdir