Newcastle vill Kean - Arsenal og Liverpool hafa áhuga á Eze - Modric gæti farið til Katar
   mán 07. apríl 2025 06:00
Elvar Geir Magnússon
Dregið í 32-liða úrslit í dag - Liðin í Bestu koma inn
Það verður dregið í höfuðstöðvum KSÍ í dag.
Það verður dregið í höfuðstöðvum KSÍ í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
KA er ríkjandi bikarmeistari.
KA er ríkjandi bikarmeistari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag klukkan 13:15 og mun Fótbolti.net fylgjast með drættinum í beinni.

32-liða úrslitin fara fram dagana 17.-19. apríl, en liðin í Bestu deild karla koma inn í keppnina ásamt þeim 20 félögum sem vinna sína leiki í 2. umferð.

Enn á eftir að leika sjö leiki í 2. umferð bikarsins en hér neðar má sjá leikina sem eru eftir.

Liðin sem verða í pottinum:

Besta deildin: Breiðablik, ÍA, KA, KR, Valur, Vestri, FH, ÍBV, Stjarnan, Víkingur, Fram, Afturelding.

Lengjudeildin: HK, Þór, Grindavík, Fylkir, Þróttur, Keflavík, Leiknir.

2. deild: Haukar, Kári, KFA, Höttur/Huginn.

4. deild: KÁ.

5. deild: Úlfarnir.



Leikirnir sem eru eftir í 2. umferð:

miðvikudagur 9. apríl
19:00 Víkingur Ó.-Smári (Ólafsvíkurvöllur)
19:00 ÍH-Selfoss (Skessan)

föstudagur 11. apríl
18:30 Njarðvík-BF 108 (Nettóhöllin-gervigras)
19:00 Grótta-Víðir (Þróttheimar)
19:00 Tindastóll-Völsungur (Sauðárkróksvöllur)
20:00 Augnablik-ÍR (Fífan)

mánudagur 14. apríl
19:00 RB-Fjölnir (Nettóhöllin)
Athugasemdir
banner
banner