Newcastle vill Kean - Arsenal og Liverpool hafa áhuga á Eze - Modric gæti farið til Katar
   mán 07. apríl 2025 06:00
Elvar Geir Magnússon
„Okkur hefur gengið gífurlega illa á móti þeim“
Böðvar Böðvarsson.
Böðvar Böðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrstu umferð Bestu deildar karla lýkur í kvöld með viðureign Stjörnunnar og FH í Garðabænum.

„Okkur hefur gengið gífurlega illa á móti þeim og einhver Stjörnugrýla myndast síðustu ár. Við þurfum að takast á við það. Þeir eru mjög góðir á sínu gervigrasi og við þurfum að eiga algjöran toppleik til að knýja fram úrslit þar,“ segir Böðvar Böðvarsson, varnarmaður FH.

Böddi fer ekki með neinar fleipur, Stjarnan hefur unnið síðustu fimm viðureignir þessara tveggja liða og það með markatölunni 18-5 samtals.

Stjörnunni er spáð fimmta sæti í Bestu deildinni í sumar og FH því sjöunda, spennandi verður að sjá hvernig fer í kvöld.

2024:
Stjarnan 3-2 FH
FH 0-3 Stjarnan
Stjarnan 4-2 FH

2023:
FH 1-3 Stjarnan
Stjarnan 5-0 FH
FH 1-0 Stjarnan (15. apríl 2023)

2022:
Stjarnan 2-1 FH
FH 1-1 Stjarnan

2021:
Stjarnan 0-4 FH
FH 1-1 Stjarnan

2020:
Stjarnan 1-1 FH
FH 1-2 Stjarnan
Böddi: Erum kannski ekki beittustu hnífarnir í skúffunni
Athugasemdir
banner