Monchi, yfirmaður fótboltamála hjá Aston Villa, segir að Douglas Luiz sé velkominn til baka til félagsins.
Það voru miklar vonir bundnar við Brasilíumanninn hjá Juventus. Hann var keyptur þangað frá Aston Villa síðastliðið sumar og var kaupverðið 50 milljónir evra ásamt tveimur ungum leikmönnum.
Það voru miklar vonir bundnar við Brasilíumanninn hjá Juventus. Hann var keyptur þangað frá Aston Villa síðastliðið sumar og var kaupverðið 50 milljónir evra ásamt tveimur ungum leikmönnum.
Luiz hefur ekki spilað vel og Thiago Motta, stjóri Juventus, virðist hafa litla trú á honum.
Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Aston Villa og eru dyrnar þar opnar fyrir hann.
„Eftir að hann fór, þá fjárfestum við vel en ég myndi alltaf bjóða Douglas velkominn til baka. Í hvaða félag sem er. Hann er mjög sterkur," sagði Monchi við Gazzetta dello Sport.
Athugasemdir