FH-ingar hafa nælt í unglingalandsliðsmanninn Hilmar Karlsson frá Val.
Hilmar er fæddur árið 2006 og á fimm leiki að baki með U16 og U17 ára landsliðum Íslands.
Í sumar lék hann einn leik með KH, venslafélagi Vals, í 4. deildinni.
Hann gekk í raðir Vals í febrúar frá Breiðabliki og gerði þá þriggja ára samning en er nú kominn í FH.
Hilmar, sem er markvörður, hefur tvisvar farið á reynslu hjá danska félaginu Midtjylland.
Athugasemdir