Unai Emery, stjóri Aston Villa, segir ekkert til í þeim fréttum um að félagið ætli að reyna fá Douglas Luiz aftur frá Juventus í janúarglugganum.
Juventus keypti Luiz frá Aston VIlla í sumar en hann hefur aðeins byrjað tvo deildarleiki með ítalska liðinu á tímabilinu.
Enskir miðlar hafa skrifað um að Villa hafi áhuga á því að fá hann aftur frá Juventus í janúar en Emery blæs á þær sögusagnir.
„Ég skil ekki spurninguna. Hann hlýtur að vera ánægður þarna og fá þá áskorun með þessi gæði sem hann hefur til að geta hjálpað liðinu að ná markmiðum í sameiningu. Ég held að hann hafi ekki áhuga á að fara þaðan, en ég veit það þó ekki. Hann er meiddur þannig hann verður ekki hér,“ sagði Emery.
Luiz er á meiðslalistanum og verður því ekki með Juventus gegn Aston Villa er liðin eigast við á Villa Park í Meistaradeild E vrópu í kvöld.
Athugasemdir