Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, neitaði að tala um enska hægri bakvörðinn Trent Alexander-Arnold á blaðamannafundi í dag, en sá enski hefur verið orðaður við spænska félagið síðustu vikur.
Alexander-Arnold, sem er á mála hjá Liverpool, er að renna út á samningi eftir tímabilið og fátt sem bendir til þess að hann geri nýjan samning.
Real Madrid er talið líklegasti áfangastaður hans en Trent hefur verið þögull sem gröfin varðandi framtíð sína.
Liverpool og Real Madrid mætast á morgun í Meistaradeildinni og sáu fjölmiðlar þar tækifæri til að spyrja Ancelotti út í Trent en hann vildi lítið tjá sig um enska landsliðsmanninn.
„Mér þykir leiðinlegt að segja þetta, en ég get ekki talað um Trent. Hann er ekki minn leikmaður,“ sagði Ancelotti.
Athugasemdir