Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 30. desember 2022 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nubel ekki spenntur fyrir því að fara aftur til Bayern
Alexander Nubel.
Alexander Nubel.
Mynd: Getty Images
Alexander Nubel sér ekki fyrir sér að snúa aftur til Bayern München á næstunni.

Manuel Neuer er meiddur eftir skíðaslys og spilar ekki meira á tímabilinu.

Bayern hefur verið í leit að markverði til að koma inn í staðinn fyrir Neuer út þessa leiktíð. Nubel er á meðal þeirra markvarða sem Bayern hefur verið að skoða en hann var varamarkvörður fyrir Neuer frá 2020 til 2021.

Nubel er á mála hjá Mónakó núna og líður vel þar. Hann sér ekki fram á að yfirgefa félagið og fara aftur til Bayern.

„Það væri ekki sniðugt fyrir mig að fara aftur til Bayern," sagði Nubel við Bild en hann er ekki spenntur fyrir því að verða varamarkvörður aftur fyrir Neuer þegar hann snýr til baka úr meiðslum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner