Marc Guehi, varnarmaður Crystal Palace og enska landsliðsins, er á óskalista spænska stórveldisins Real Madrid.
Það er enska götublaðið The Sun sem segir frá þessu en Real Madrid er alls ekki eina félagið sem hefur áhuga á honum. Önnur stórt félög í Evrópu eru líka með augastað á honum.
Það er enska götublaðið The Sun sem segir frá þessu en Real Madrid er alls ekki eina félagið sem hefur áhuga á honum. Önnur stórt félög í Evrópu eru líka með augastað á honum.
Guehi er virkilega öflugur varnarmaður sem er einn af fáum leikmönnum Englands sem hefur heillað með frammistöðu sinni á EM í sumar.
Hann er algjör lykilmaður fyrir Crystal Palace en það verður líklega erfitt fyrir enska félagið að halda honum ef Real Madrid tekur upp símann.
Nacho yfirgaf Real Madrid á dögunum og fór til Sádi-Arabíu. Þess vegna er Madrídarstórveldið að leita að miðverði. Leny Yoro, varnarmaður Lille í Frakklandi, hefur einnig verið orðaður við Evrópumeistarana.
Það er talið að Crystal Palace vilji fá um 60 milljónir evra fyrir Guehi, sem er svipuð upphæð og félagið er að selja Michael Olise á til Bayern München.
Athugasemdir