Delap undir smásjá Man Utd - Ederson á óskalista Man City - Verður Saliba sá dýrasti?
   lau 08. febrúar 2025 23:00
Sölvi Haraldsson
Amorim: Við skiptum um gír
Ruben Amorim.
Ruben Amorim.
Mynd: EPA
Manchester United fór áfram í enska FA bikarnum í gær eftir dramatískan sigur á Leicester City á Old Trafford.

Harry Maguire skoraði sigurmark heimamanna sem kom í uppbótartíma. Eftir leik komst svo í ljós að Maguire hafi verið rangstæður en á þessu stigi í keppninni er ekki notað VAR.

Amorim segir að sigurinn hafi ekkert með Fergie time að gera. Fergie time er heiti yfir mörk sem United skoraði djúpt í uppbótartíma í valdatíð Sir Alex Ferguson.

Við trúum alltaf að við munum skora en þessi sigur hafði ekkert með Fergie time að gera. Varðandi frammistöðuna þurfum við að gera mun betur á boltanum og án hans.“ sagði Amorim og bætti svo við að hann var ekki sáttur með orkuna í liðinu.

Það var engin orka í liðinu til að byrja með, sérstaklega í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik spiluðum við aðeins betur. Við skiptum um gír og það var gott að ná sigrinum í lokin.“ sagði Amorim, stjóri Manchester United, í samtalið við ITV eftir leikinn í gærkvöldi.
Athugasemdir
banner
banner
banner