Liverpool hefur sett sig í samband við fólk sem er nátengt Alexander Isak - Úlfarnir horfa til Jota
   mán 10. október 2022 21:21
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Titilbaráttunni lokið eftir tap Víkings í Garðabæ
Daníel Laxdal gerði út um vonir Víkinga
Daníel Laxdal gerði út um vonir Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Stjarnan 2 - 1 Víkingur R.
0-1 Karl Friðleifur Gunnarsson ('60 )
1-1 Óskar Örn Hauksson ('63 )
2-1 Daníel Laxdal ('71 )
Lestu um leikinn

Stjarnan lagði Víking, 2-1, á Samsung-vellinum í Garðabæ í efri hluta Bestu deildar karla í kvöld, en þessi úrslit þýða það að titilbaráttunni er lokið og er það Breiðablik sem vinnur Íslandsmeistaratitilinn í ár.

Það voru Víkingar sem sköpuðu sér færin í fyrri hálfleiknum en náðu aldrei að binda endahnút á sóknirnar.

Arnór Borg Guðjohnsen fékk sennilega besta færið á 23. mínútu er Ari Sigurpálsson kom boltanum á Arnór sem var kominn í frábært færi en boltinn yfir markið.

Víkingar náðu að brjóta ísinn á 60. mínútu leiksins er Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði eftir gott samspil Víkinga. Hann lét vaða á markið og fór boltinn af varnarmanni og í netið.

Tæpum þremur mínútum síðar jafnaði Óskar Örn Hauksson eftir mikinn klaufagang í vörn gestanna. Viktor Örlygur Andrason missti boltann frá sér og náði Kjartan Már Kjartansson að nýta sér það og koma sér í góða stöðu. Hann reyndi að koma sér í skotstöðu en ákvað í staðinn að lauma honum fyrir Óskar Örn sem var ekki í neinum vandræðum með að klára í netið.

Á 71. mínútu gerði Daníel Laxdal sigurmark Stjörnunnar. Jóhann Árni Gunnarsson tók aukaspyrnu inn í teig og var það Daníel sem náði að reka hausinn í boltann sem hafnaði síðan í markinu.

Stjarnan fagnar góðum 2-1 sigri á Víkingum og fer upp fyrir Val í 5. sæti með 34 stig. Þetta tap Víkings þýðir að liðið er áfram í 2. sæti með 46 stig og nú ellefu stigum á eftir Blikum þegar þrír leikir eru eftir. Titilbaráttunni er því lokið og Blikar fagna öðrum Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner