„Mér fannst þetta bara lélegur leikur hjá okkur, sérstaklega fyrri hálfleikurinn. Það var ekkert sem var líkt Val,'' segir Pétur Pétursson, þjálfari Val, eftir 2-0 sigur gegn FH í 3. umferð efri hluta Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 FH
„Hrós á FH hvernig þau spiluðu þennan leik. Seinni hálfleikur hjá okkur þá kveiknaði aðeins meira á okkur, en mér fannst þetta ekki gott í dag.''
Pétur var alls ekki sáttur með frammistöðu leikmennina hans eftir leikinn.
„Þetta var bara ólíkt okkur, sendingarnar lélegar, ákveðin léleg og pressan léleg. Mér fannst þetta bara ekki líkt okkur.''
Breiðablik vann sinn leik 6-1 gegn Þór/KA og liggja ennþá einu stigi fyrir ofan Val í efsta sæti í deildinni.
„Staðan hefur svo sem ekkert breyst frá því í sumar, þetta er búið að vera svona í allt sumar hvort sem að við vorum fyrir ofan eða þær. Málið snýst bara um það að þú þarft að vinna þína leiki til þess að vera Íslandsmeistari,''
Pétur var ekki sáttur eftir leikinn, en hann var spurður út í hvort það kom eitthvað jákvætt úr leiknum í dag.
„Nadía var mjög góð í þessum leik og hún skoraði tvö góð mörk. Við fengum ekki mark á okkur heldur. Ég held að við höfum ekki fengið mikið að færum á okkur sem þýðir að varnaleikurinn var góður og Fanney í markinu,'' segir Pétur
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni fyrir ofan.