„Alltaf gott að vinna og við vorum ekkert eitthvað allt of góðar í dag, en við unnum það er fyrir öllu.'' segir Nadía Atladóttir, leikmaður Val, eftir 2-0 sigur gegn FH í 3. umferð efri hluta Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 FH
Nadía skoraði tvö mörk í þessum leik og þá einu mörk leiksins.
„Mér fannst ég alveg standa mér vel og skoraði tvö mark, þannig ég er bara ánægð,''
„Mér fannst við geta spilað boltnaum betur. Við vorum ekki að láta hann ganga nógu vel á milli okkar og alltaf að leita af boltum fram í staðinn fyrir að láta hann fara í gegnum miðjuna og spila okkar bolta,''
Aðeins tveir leikir eru eftir af tímabilinu. Nadía var spurð út í hennar mat á tímabilinu í ár.
„Hún er búin að vera bara fín heilt yfir, við erum kannski ekki að dóminera alla leikina sem mér finnst að við eigum að gera. Við erum að vinna þannig það hlýtur að vera eitthvað.'' segir Nadía í lokinn.
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni fyrir ofan.