Davíð Kristján Ólafsson fór hamförum þegar Cracovia vann 6-2 gegn Motor Lublin í pólsku deildinni í dag.
Motor Lublin komst yfir snemma leiks en Davíð Kristján jafnaði metin stuttu síðar. Motor Lublin náðii aftur forystunni en aftur náði Davíð að svara með marki. 2-2 í hálfleik.
Hann fullkomnaði síðan þrennu sína þegar rúmur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Cracovia náði að bæta við tveimur mörkum í kjölfarið og Davíð fullkomnaði síðan sinn leik með því að leggja upp sjötta mark liðsins. 6-2 lokatölur.
Cracovia er í 3. sæti deildarinnar með 26 stig eftir 23 umferðir.
Athugasemdir