Breiðablik er komið í ansi góða stöðu í úrslitaleiknum gegn Víkingi. Bliakr eru 2-0 yfir en Ísak Snær Þorvaldsson skoraði bæði mörkin.
„SENUR!! Damir með frábæra takta, kemur boltanum í teiginn. Úr verður darraðadans. Höskuldur reynir skotið en boltinn dettur fyrir Ísak sem kemur boltanum inn af stuttu færi. Blikar í kjörstöðu! Ísak hleypur svo til stuðningsmanna Blika og fagnar innilega með þeim!" skrifaði Kári Snorrason í textalýsingu frá leiknum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 3 Breiðablik
Annað mark Ísaks kom á 50. mínútu en í upphafi seinni hálfleiks hafði Víkingur komist nálægt því að jafna þegar boltinn fór í stöngina.
Víkingi nægir jafntefli til að tryggja sér titilinn og liðið hefur átt nokkrar magnaðar endurkomur á tímabilinu. Spurning hvort Víkingar nái endurkomu í kvöld?
Athugasemdir