PSG í baráttuna um Trent - Liverpool hefur áhuga á Dedic - Perez undirbýr stjóraskipti
   sun 27. október 2024 22:22
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu ótrúlegt mark Karólínu gegn Bandaríkjunum - Skoraði beint úr horni
Icelandair
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var rétt í þessu að skora stórbrotið mark gegn Bandaríkjunum, einu besta landsliði heims, í vináttuleik þjóðanna í Nashville, Tennessee í Bandaríkjunum.

Íslenska liðið tapaði fyrri vináttuleiknum 3-1 í Austin í Texas-ríki á fimmtudag og þar skoraði Selma Sól Magnúsdóttir einmitt flott mark í því tapi.

Ísland hefur nú tekið forystuna gegn Bandaríkjunum en markið gerði Karólína Lea beint úr hornspyrnu.

Karólína setti góðan snúning á boltann, sem fór yfir allan pakkann og í fjærhornið. Stórglæsilegt mark í alla staði og staðan 1-0 fyrir Íslandi þegar lítið er eftir af fyrri hálfleik.

Markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner