Byrjunarliðin í stórleik dagsins milli Arsenal og Liverpool eru komin inn. Það eru góðar fréttir fyrir Arsenal að Bukayo Saka er klár í slaginn.
Þá er Jurrien Timber einnig klár í slaginn en það er útlit fyrir að Declan Rice gæti verið í miðverði í fjarveru William Saliba sem er í banni. Þá gæti Thomas Partey verið í bakverðinum og Ben White í miðverði.
Það eru þrjár breytingar á liði Liverpool sem vann Chelsea um síðustu helgi. Darwin Nunez er fremstur en Diogo Jota er á meiðslalistanum. Luis Diaz og Alexis Mac Allister koma einnig inn fyrir Cody Gakpo og Dominik Szoboszlai.
Arsenal: Raya; Partey, White, Gabriel, Timber; Rice, Merino, Trossard; Saka, Havertz, Martinelli
Liverpool: Kelleher, Robertson, Van Dijk, Konate, Alexander-Arnold, Gravenberch, Mac Allister, Jones, Diaz, Salah, Nunez.