PSG í baráttuna um Trent - Liverpool hefur áhuga á Dedic - Perez undirbýr stjóraskipti
   lau 26. október 2024 20:28
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Barcelona komið í 2-0 á Bernabeu - Lewandowski með tvö á tveimur mínútum
Mynd: Getty Images
Spænska liðið Barcelona er komið í 2-0 forystu gegn Real Madrid í El Clasico á Santiago Bernabeu en pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski skoraði tvö mörk á tveimur mínútum í byrjun síðari hálfleiks.

Madrídingar fengu betri færi í fyrri hálfleiknum og komu boltanum meðal annars í netið um miðjan hálfleikinn er Kylian Mbappe skoraði, en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

VInicius Junior átti líka ágætis tilraun nokkrum mínútum áður en setti boltann framhjá.

Barcelona byrjaði síðari hálfleikinn frábærlega. Lewandowski tók forystuna fyrir Barcelona eftir að Marc Casado sendi hann í gegn. Rangstöðugildran virkaði illa hjá Madrídingum.

Lewandowski var kaldur. Hann hafði allan tímann í heiminum til að keyra inn í teiginn, en ákvað í staðinn að láta bara vaða fyrir utan og neðst í hægra hornið.

Sjáðu markið hér

Tveimur mínútum síðar gerði hann annað mark sitt með skalla eftir fyrirgjöf Alejandro Balde, Hrikaleg dekkning hjá Eder Militao og Antonio Rüdiger sem kostaði mark.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner