Íslenska kvennalandsliðið mætir Bandaríkjunum í vináttuleik í annað sinn í kvöld en spilað verður á Geodis Park í Nasville, Tennessee klukkan 21:30.
Þjóðirnar mættust í Austin í Texas á fimmtudag og hafði bandaríska liðið þar betur, 3-1.
Selma Sól Magnúsdóttir skoraði eina mark Íslands með stórkostlegu skoti fyrir utan teig.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, talaði um það í viðtali fyrir þann leik að hann myndi gera margar breytingar á liðinu milli leikja og verður því fróðlegt að sjá hvernig hann stillir upp í kvöld.
Leikurinn er sýndur í beinni dagskrá á Sjónvarpi Símans en útsending hefst klukkan 21:25.
Leikur dagsins:
21:30 Bandaríkin - Ísland (Geodis Park)
Athugasemdir