PSG í baráttuna um Trent - Liverpool hefur áhuga á Dedic - Perez undirbýr stjóraskipti
   lau 26. október 2024 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Meistararnir töpuðu stigum á útivelli
Victor Boniface skoraði fyrra mark Leverkusen
Victor Boniface skoraði fyrra mark Leverkusen
Mynd: EPA
Werder 2 - 2 Bayer
0-1 Victor Boniface ('30 )
1-1 Marvin Ducksch ('74 )
1-2 Felix Agu ('77 , sjálfsmark)
2-2 Romano Schmid ('90 )

Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen töpuðu óvænt stigum er liðið gerði 2-2 jafntefli við Werder Bremen í dag.

Leverkusen hefur ekki farið eins vel af stað og liðið hafði vonast eftir, en það hefur aðeins unnið fjóra af átta leikjum sínum og þá gerði það þriðja jafnteflið í dag.

Nígeríski framherjinn Victor Boniface skoraði fyrir gestina eftir hálftíma og stóðu leikar þannig alveg fram að 74. mínútu er Marvin Ducksch jafnaði metin.

Felix Agu, leikmaður Bremen, setti boltann í eigið net aðeins þremur mínútum síðar. Fyrirgjöfin kom inn í teiginn og var Agu með mann í sér. Hann gerði heiðarlega tilraun til að hreinsa, en í staðinn þrumaði hann boltanum í markið. Stórfurðulegt mark.

Florian Wirtz var hársbreidd frá því að tryggja Leverkusen sigurinn en þrumuskot hans hafnaði í stönginni hægra megin. Það reyndist honum dýrkeypt að hafa ekki nýtt það færi því Bremen jafnaði stuttu síðar með laglegu marki Romano Schmid úr teignum.

Leverkusen, sem hefur verið þekkt fyrir það að sækja sigurmörk í uppbótartíma, tókst ekki að gera það í dag og lokatölur því 2-2. Leverkusen er í 3. sæti deildarinnar með 15 stig, fimm stigum frá toppliði Bayern, en Bremen í 9. sæti með 12 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 8 6 2 0 29 7 +22 20
2 RB Leipzig 8 6 2 0 14 3 +11 20
3 Leverkusen 8 4 3 1 20 15 +5 15
4 Union Berlin 8 4 3 1 9 5 +4 15
5 Freiburg 8 5 0 3 13 11 +2 15
6 Eintracht Frankfurt 8 4 2 2 16 12 +4 14
7 Dortmund 8 4 1 3 15 14 +1 13
8 Stuttgart 8 3 3 2 17 16 +1 12
9 Werder 8 3 3 2 14 16 -2 12
10 Heidenheim 8 3 1 4 12 11 +1 10
11 Gladbach 8 3 1 4 11 13 -2 10
12 Augsburg 8 3 1 4 12 19 -7 10
13 Mainz 8 2 3 3 12 13 -1 9
14 Wolfsburg 8 2 2 4 15 16 -1 8
15 Hoffenheim 8 2 2 4 13 17 -4 8
16 St. Pauli 8 1 2 5 5 11 -6 5
17 Holstein Kiel 8 0 2 6 10 23 -13 2
18 Bochum 8 0 1 7 7 22 -15 1
Athugasemdir
banner
banner