Ben White, Bukayo Saka og Mohamed Salah voru allir frábærir í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Liverpool á Emirates-leikvanginum í kvöld. Goal sér um einkunnir að þessu sinni.
White og Saka voru bestir í liði Arsenal. White átti stoðsendinguna á Saka í fyrra marki Arsenal og var almennt mjög öflugur í varnarleiknum.
Saka, sem var með fyrirliðabandið í fjarveru Martin Ödegaard, var mikil ógn á vængnum og fær 8 í einkunn eins og White.
Mohamed Salah var besti maður Liverpool en hann gerði jöfnunarmarkið sem tryggði liðinu stig. Andy Robertson var slakasti maður vallarins með 4, en hann lét Saka fara illa með sig í fyrsta markinu og var síðan skipt af velli fyrir Kostas Tsimikas.
Arsenal: Raya (6), Partey (6), White (8), Gabriel (6), Timber (6), Saka (8), Merino (7), RIce (6), Martinelli (5), Havertz (5), Trossard (6).
Varamenn: Kiwior (6), Lewis-Skelly (5).
Liverpool: Kelleher (7), Alexander-Arnold (6), Konate (7), Van Dijk (7), Robertson (4), Mac Allister (6), Gravenberch (7), Jones (7), Salah (8), Nunez (7), Díaz (7).
Varamenn: Tsimikas (7), Gakpo (7), Szoboszlai (6).
Athugasemdir