PSG í baráttuna um Trent - Liverpool hefur áhuga á Dedic - Perez undirbýr stjóraskipti
   lau 26. október 2024 18:52
Brynjar Ingi Erluson
England: Varamaðurinn bjargaði stigi fyrir Everton
Mynd: Getty Images
Everton 1 - 1 Fulham
0-1 Alex Iwobi ('61 )
1-1 Beto ('90 )

Everton og Fulham gerðu 1-1 jafntefli í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Goodison Park í dag. Portúgalski sóknarmaðurinn Beto jafnaði metin fyrir Everton seint í uppbótartíma síðari hálfleiks.

Gestirnir í Fulham voru betri aðilinn í byrjun leiks en fyrsta hættulega færið kom ekki fyrr en á 27. mínútu er Jordan Pickford sá við Adama Traore.

Stuttu síðar átti Emile Smith Rowe skot rétt yfir markið. Leikurinn opnaðist betur eftir það og taldi Dominic Calvert-Lewin sig hafa komið Everton í forystu er hann hirti frákast eftir skot Idrissa Gana Gueye í þverslá. VAR tók hins vegar markið var Calvert-Lewin þar sem hann var í rangstöðu þegar hann setti boltann í netið.

Staðan markalaus í hálfleik en það var Fulham sem tók forystuna þegar hálftími var til leiksloka.

Smith Rowe keyrði upp völlinn áður en hann lagði boltann á Alex Iwobi, fyrrum leikmann Everton, sem skoraði með góðu skoti.

Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jöfnuðu Everton-menn. Ashley Young kom með fyrirgjöf á teiginn á varamanninn Beto sem skoraði með skalla.

Lokatölur 1-1 á Goodison Park. Everton er í 15. sæti með 9 stig en Fulham í 10. sæti með 12 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 9 7 2 0 20 9 +11 23
2 Liverpool 9 7 1 1 17 5 +12 22
3 Arsenal 9 5 3 1 17 10 +7 18
4 Aston Villa 9 5 3 1 16 11 +5 18
5 Chelsea 9 5 2 2 19 11 +8 17
6 Brighton 9 4 4 1 16 12 +4 16
7 Nott. Forest 9 4 4 1 11 7 +4 16
8 Tottenham 9 4 1 4 18 10 +8 13
9 Brentford 9 4 1 4 18 18 0 13
10 Fulham 9 3 3 3 12 12 0 12
11 Bournemouth 9 3 3 3 11 11 0 12
12 Newcastle 9 3 3 3 9 10 -1 12
13 West Ham 9 3 2 4 13 16 -3 11
14 Man Utd 9 3 2 4 8 11 -3 11
15 Leicester 9 2 3 4 13 17 -4 9
16 Everton 9 2 3 4 10 16 -6 9
17 Crystal Palace 9 1 3 5 6 11 -5 6
18 Ipswich Town 9 0 4 5 9 20 -11 4
19 Wolves 9 0 2 7 12 25 -13 2
20 Southampton 9 0 1 8 6 19 -13 1
Athugasemdir
banner