Spænsku miðlarnir Marca og Sport halda utan um einkunnir úr 4-0 stórsigri Barcelona á Real Madrid á Santiago Bernabeu í kvöld.
Margar stjörnur Real Madrid fá falleinkunn í Marca en alls voru fimm leikmenn með 3.
Lucas Vazquez, Aurelien Tchouameni, Ferland Mendy, Jude Bellingham og Kylian Mbappe fá allir þá einkunn.
Vinicius Junior var skástur í liðinu en fékk samt aðeins 4,5 í einkunn frá Marca.
Einkunnir Real Madrid: Lunin (4), Vazquez (3), Rudiger (4), Militao (4), Mendy (3), Tchouameni (3), Valverde (4), Camavinga (4), Bellingham (3), Vinicius Jr (4,5), Mbappe (3).
Varamenn: Modric (4), Brahim (4).
Sport sá um einkunnir fyrir Barcelona en sex leikmenn fá 9 í einkunn. Það eru þeir Inaki Pena, Inigo Martinez, Pedri, Lamine Yamal, Robert Lewandowski og Raphinha.
Einkunnir Barcelona: Pena (9), Kounde (8), Cubarsi (8), Martinez (9), Balde (8), Casado (8), Pedri (9), Fermin (7), Yamal (9), Lewandowski (9), Raphinha (9).
Varamenn: De Jong (8), Gavi (7), Olmo (7).
Athugasemdir