Man Utd reynir við Gyökeres í þessum glugga - Trent færist nær Real Madrid - Arsenal leiðir kapphlaupið um Omar Marmoush
   þri 31. desember 2024 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Skoraði gegn uppeldisfélaginu - „Þakklátur fyrir það sem Chelsea gerði"
Mynd: Getty Images
Omari Hutchinson skoraði annað af mörkum Ipswich í frábærum 2-0 sigri gegn Chelsea í gær en hann er uppalinn þar.

Hann spilaði tvo leiki fyrir liðið áður en hann fór á lán til Ipswich í fyrra en félagið keypti hann síðan í sumar.

„Ég er þakklátur fyrir það sem Chelsea gerði fyrir ferilinn minn, gáfu mér frumraunina, en ég er að spila með Ipswich núna og vil skora og hjálpa liðinu mínu að ná í stigin þrjú og hjálpa okkur að halda sæti okkar í deildinni," sagði Hutchinson.

Hutchinson fagnaði markinu með því að taka heljarstökk.

„Allir hafa verið að biðja mig um að gera þetta svo mér datt í hug að gera það í fyrsta heimasigrinum," sagði Hutchinson.
Athugasemdir
banner
banner
banner