Man City býr sig undir tilboð frá Sádi-Arabíu - Marseille bjartsýnt á að fá Greenwood - Barcelona leiðir í baráttu um Williams
banner
   mið 03. júlí 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Enskir dómarar á báðum leikjunum á föstudag
Anthony Taylor.
Anthony Taylor.
Mynd: EPA
Átta liða úrslit Evrópumótsins eru að fara af stað og það eru tveir ansi spennandi leikir framundan á föstudag.

UEFA hefur opinberað að í báðum leikjunum munu enskir dómarar sjá um dómgæsluna.

Anthony Taylor dæmir leik Spánar og Þýskalands klukkan 16 og VAR dómari verður Stuart Attwell.

Michael Oliver dæmir svo leik Portúgals og Frakklands um kvöldið. Aðstoðar VAR dómari á þeim leik verður David Coote.

Taylor er talinn eiga fína möguleika á því að fá úrslitaleikinn, ef enska landsliðið fer ekki þangað.
Athugasemdir
banner
banner