Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
banner
   mið 16. október 2024 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho á eftir hinum týnda Ansu Fati
Ansu Fati.
Ansu Fati.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Fenerbahce í Tyrklandi, hefur áhuga á því að krækja í framherjann Ansu Fati frá Barcelona.

Fati þótti eitt sinn ein mesta vonarstjarna fótboltans og var talað um hann í sömu setningu og Lionel Messi þegar hann var að koma upp hjá Barcelona.

Það hefur hins vegar heldur betur hægst á ferli hans og hefur hann verið svolítið týndur síðustu ár.

Hann var á láni hjá Brighton á Englandi á síðustu leiktíð en gerði engar rósir þar.

Fati fær núna ekki mikið að spreyta sig með Barcelona en samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur Mourinho áhuga á því að krækja í hann.

Mourinho, sem er einn sigursælasti stjóri í sögu fótboltans, tók við Fenerbahce í sumar en liðið er sem stendur í fjórða sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner