Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
   mið 16. október 2024 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sækir um skilnað frá Kyle Walker
Kyle Walker.
Kyle Walker.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enska götublaðið The Sun hefur greint frá því að Annie Kilner hafi sótt um skilnað frá Kyle Walker, bakverði Manchester City og enska landsliðsins.

Hjónaband þeirra varð mjög súrt eftir að Walker hélt fram hjá henni oftar en einu sinni. Þau tala ekki lengur saman en samkvæmt heimildum Sun var Walker mjög hissa þegar Kilner sótti um skilnað.

Walker eignaðist barn með áhrifavaldinum Lauryn Goodman á síðasta ári, á meðan hann var enn giftur Kilner. Það var annað barnið sem hann eignast með Goodman en þau eiga fyrir soninn Kairo.

„Það sem ég hef gert er hræðilegt og ég tek fulla ábyrgð á því," sagði Walker þá.

Kilner henti Walker út eftir að Kairo fæddist árið 2020 en tók svo aftur við honum. Walker samþykkti þá að slíta öll samskipti sín við Goodman en stóð svo sannarlega ekki við það.
Athugasemdir