Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
   mið 16. október 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Liverpool
Trey Nyoni.
Trey Nyoni.
Mynd: Getty Images
Hinn bráðefnilegi Trey Nyoni hefur skrifað undir sinn fyrsta atvinnumannasamnng við Liverpool.

Nyoni, sem er orðinn 17 ára, gekk í raðir Liverpool frá Leicester í september í fyrra.

Nyoni byrjaði á því að spila í U18 liði Liverpool en þar vakti hann fljótt athygli fyrir flotta frammistöðu.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Harvey Elliott í 3-0 sigri gegn Southampton í FA-bikarnum. Hann varð yngsti leikmaður í sögu Liverpool í þessari keppni.

Nyoni hefur spilað fyrir U16, U17 og U18 landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner