Gomes, Lookman og Kolo Muani orðaðir við Man Utd - Trossard fær launahækkun - Brownhill í ítalska boltann?
   fös 22. nóvember 2024 09:21
Elvar Geir Magnússon
Tengdasonur Roy Keane fór á skeljarnar á snekkju
Harwood-Bellis og Leah Keane trúlofuðust í sumar.
Harwood-Bellis og Leah Keane trúlofuðust í sumar.
Mynd: Instagram
Roy Keane.
Roy Keane.
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Taylor Harwood-Bellis og unnusta hans Leah Keane, dóttir Manchester United goðsagnarinnar Roy Keane, hafa opinberað mynd af stundinni þegar hann bar upp bónorðið.

Samband þeirra hefur orðið að fjölmiðlaefni undanfarnar vikur, eftir að Harwood-Bellis var valinn í enska landsliðið. Þessi miðvörður Southampton skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í stórsigrinum gegn Írlandi.

Parið hafði fram að því haldið sambandi sínu leyndu en er ekki lengur með þá nálgun. Harwood-Bellis hefur birt mynd af því þegar hann fór á skeljarnar þann 13. júní síðasta sumar á snekkju á Ítalíu.

Hann er góður strákur
Roy Keane, sem er auðvitað írskur, var í sjónvarpssal sem sérfræðingur þegar tengdasonur hans skoraði gegn Írlandi.

„Þetta er súrsætt fyrir mig," sagði Keane en Mark Pougatch, kynnir hjá ITV Sport, sagði þá: „Það vita það ekki allir en hann er verðandi tengdasonur þinn."

„Það er ekki alveg klárt. Hlutirnir eru fljótir að breytast á heimili Keane fjölskyldunnar," sagði Keane hnyttinn en hrósaði Harwood-Bellis í kjölfarið. „Það er gott hjá honum að spila sinn fyrsta landsleik, hann er hættulegur fyrir framan markið. Hann er góður strákur og fjölskyldan hans hefur gert mjög vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner