Manchester City fékk fína innspýtingu í gær þegar þeir Kevin de Bruyne, Jack Grealish, Phil Foden og Manuel Akanji æfðu allir með liðinu.
Enginn af þeim tók þátt í leikjum sinna þjóða í nýafstöðnu landsleikjahléi. Foden spilaði síðasta leik hjá City en hvíldi í hléinu. De Bruyne hefur verið að koma sér af stað og kom inn á í síðasta leik fyrir hlé en Grealish hefur misst af síðustu sex leikjum.
Akanji var þá ónotaður varamaður gegn Brighton, síðasta leik City fyrir hlé.

City hefur tapað síðustu fjórum leikjum sínum í öllum keppnum og á leik gegn Tottenham seinni partinn á laugardag.
Athugasemdir