Alisson, markvörður Liverpool, hefur verið fjarverandi vegna meiðsla síðan í byrjun október en hann nálgast endurkomu.
Hann hefur ekkert æft fyrr en í gær þar sem hann mætti á æfingasvæði félagsins vopnaður skóm og hönskum en ekki er ljóst hversu mikinn þátt hann tók á æfingunni.
U21 árs lið Liverpool æfir með leikmönnum aðalliðsins sem voru ekki í landsliðsverkefnum, þ.á.m. Mohammed Salah en Alisson var einnig mættur.
Caoimhín Kelleher hefur verið í markinu í undanförnum leikjum en liðið hefur unnið sex leiki og gert eitt jafntefli síðan Alisson meiddist.
Athugasemdir