Mbeumo, Wirtz, Diomande, Quenda, Nypan, Van Nistelrooy, Cherki og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 21. nóvember 2024 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir Frank ráðinn aðstoðarþjálfari Fjölnis
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir tilkynnti í dag að Ásgeir Frank Ásgeirsson væri orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Ásgeir skrifar undir tveggja ára samning í Grafarvogi þar sem hann mun aðstoða Úlf Arnar Jökulsson með Lengjudeildarlið Fjölnis.

Hann var þjálfari Hvíta riddarans á síðasta tímabili og var einnig í kringum meistaraflokkinn hjá Aftureldingu.

Úr tilkynningu Fjölnis:
Ásgeir, sem er alinn upp í Fossvoginum, lék upp yngri flokkana hjá Víkingum í Reykjavík ogi lék með þeim 2 leiki í Bestu deildinni með uppeldisfélaginu. Þess utan lék Ásgeir í 3 ár með liði Aftureldingar sem fór upp í efstu deild nú í haust auk þess sem hann þjálfaði lið Hvíta Riddarans í fyrra. Ásgeir á að baki 5 leiki fyrir U-19 ára landslið karla.

Er þetta mikill fengur fyrir Fjölni að fá svona sterkan einstakling og karakter í Grafarvoginn enda mun Ásgeir einnig vinna þvert á flokka og verða leiðandi í afreksstarfi Fjölnis í samstarfi við yfirþjálfara félagsins og þjálfara 2. og 3. flokks karla.

Vill félagið á sama tíma þakka fráfarandi aðstoðarþjálfara félagsins, Einari Jóhannesi Finnbogasyni, fyrir samstarfið undanfarin ár. Einar hefur verið afar vinsæll meðal Fjölnismanna eftir að hafa verið hægri hönd Úlla bæði í 2. flokki karla og í meistaraflokki sl. sjö ár.
Athugasemdir
banner
banner