Sóknarmaðurinn Orri Steinn Óskarsson verður ekki með Real Sociedad þegar liðið mætir Athletic Bilbao í nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni um helgina.
Orri Steinn fór meiddur af velli þegar Ísland tapaði 4-1 gegn Wales í Þjóðadeildinni á þriðjudag.
Orri Steinn fór meiddur af velli þegar Ísland tapaði 4-1 gegn Wales í Þjóðadeildinni á þriðjudag.
Meiðslin litu ekki vel út en Imanol Alguacil, þjálfari Sociedad, hefur útilokað að Orri verði með um helgina.
„Hann verður ekki með um helgina. Við verðum að skoða hann betur," sagði Alguacil en óvíst er hversu lengi Orri verður frá.
Orri var keyptur til Sociedad fyrir metfé síðastliðið sumar en hingað til hefur hann skorað þrjú mörk í tólf leikjum fyrir félagið.
Athugasemdir