Lautaro Martinez hefur átt frábæran feril en hann er algjör goðsögn hjá Inter.
Þessi 27 ára gamli argentíski framherji hefur unnið ítölsku deildina tvisvar með Inter og var heimsmeistari með Argentínu árið 2022.
Marco Materazzi, fyrrum leikmaður Inter, varar önnur lið við því að kaupa hann.
„Hann skorar kannski ekki jafn mikið um þessar mundir og venjulega en hann hjálpar alltaf liðinu. Hann getur spilað í öllum deildum, ensku úrvalsdeildinni, þýsku. Hann er heimsklassa leikmaður," sagði Materazzi.
„Hann er fyrirliði Inter og hann mun komast í sitt gamla form og skora mörk. Ef ég á að senda skilaboð til enskra félaga væri það: Ekki koma nálægt fyrirliðanum okkar."
Athugasemdir