Eftir að hafa spilað með Þrótti í sumar, þá er Leah Pais farin heim til Kanada.
Pais, sem getur bæði spilað á miðju og fremst á vellinum, hefur samið við AFC Toronto.
Pais, sem getur bæði spilað á miðju og fremst á vellinum, hefur samið við AFC Toronto.
Hún segir að það hafi verið erfitt að vera fjarri fjölskyldu sinni og það sé gott að vera komin aftur heim. „Ég var gríðarlega spennt að koma heim og spila."
Pais spilaði 15 leiki í Bestu deildinni síðasta sumar og skoraði tvö mörk. Hún spilaði þá þrjá leiki í Mjólkurbikarnum og skoraði fjögur mörk, en þau komu öll í sama leiknum - gegn Aftureldingu.
Þróttur hafnaði í fimmta sæti Bestu deildarinnar síðasta sumar.
Athugasemdir