Haaland að fá nýjan risasamning - Ruud í molum - Llorente aftur í úrvalsdeildina? - Cherki til Liverpool?
   sun 17. nóvember 2024 21:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Skaut á tengdasoninn - „Hlutirnir fljótir að breytast á heimili Keane fjölskyldunnar"
Mynd: Getty Images

Taylor Harwood-Bellis, varnarmaður Southampton, spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir England í 5-0 sigri gegn Írlandi í kvöld og hann gerði gott betur því hann skoraði fimmta mark liðsins.


Harwood-Bellis er trúlofaður Leah Keane sem er dóttir Roy Keane en Keane, sem er frá Írlandi, skaut á tengdasoninn sinn eftir leikinn í útsendingu ITV Sport.

„Þetta er súrsætt fyrir mig," sagði Keane en Mark Pougatch, kynnir hjá ITV Sport, sagði þá: „Það vita það ekki allir en hann er verðandi tengdasonur þinn."

„Það er ekki alveg klárt. Hlutirnir eru fljótir að breytast á heimili Keane fjölskyldunnar," sagði Keane sem hrósaði Harwood-Bellis í kjölfarið.

„Það er gott hjá honum að spila sinn fyrsta landsleik, hann er hættulegur fyrir framan markið. Hann er góður strákur og fjölskyldan hans hefur gert mjög vel."


Athugasemdir
banner
banner