Danmörk komst áfram í átta liða úrslit í A deild Þjóðadeildarinnar í gær eftir markalaust jafntefli gegn Serbíu.
Liðin spiluðu hreinan úrslitaleik en Serbía fer í umspil um að halda sæti sínu í A deild. Aðeins tvö stig skildu liðin að á endanum.
Brian Riemer, landsliðsþjálfari Danmerkur, mætti á blaðamannafund eins og menn gera strax eftir leikinn en það var sennileega stysti blaðamannafundur sögunnaar
Hann settist niður fyrir framan fjölmiðlamenn sem fengu tækifæri til að spurja hann spurninga en enginn tók á skarið og hann fékk því engar spurningar. Hann brosti til fjölmiðlamanna sem voru í salnum og stóð upp.
[TNTSports] Denmark's press conference lasted 20 seconds after a goalless game vs Serbia. No one asked questions
byu/notaghostofreddit insoccer
Athugasemdir