Mbeumo, Wirtz, Diomande, Quenda, Nypan, Van Nistelrooy, Cherki og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 21. nóvember 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kantmaður Leicester frá út tímabilið
Abdul Fatawu.
Abdul Fatawu.
Mynd: Getty Images
Abdul Fatawu, kantmaður Leicester, kemur ekki til með að spila meira á tímabilinu.

Fatawu varð fyrir alvarlegu meiðslum í landsleikjahléinu en hann sleit krossband.

„Hann verður frá út tímabilið. Þetta er mikið högg. Fyrst og fremst fyrir hann sem ungan leikmann," sagði Steve Cooper, stjóri Leicester í dag.

Fatawu, sem er tvítugur, gekk alfarið í raðir Leicester síðasta sumar eftir að hafa heillað með liðinu á láni á síðasta tímabili.

Hann hefur á yfirstandandi tímabili leikið ellefu leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner