Gomes, Lookman og Kolo Muani orðaðir við Man Utd - Trossard fær launahækkun - Brownhill í ítalska boltann?
   fös 22. nóvember 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland um helgina - Toppliðið spilar í kvöld
Óvíst er hvort Neuer verði klár fyrir leikinn gegn Augsburg
Óvíst er hvort Neuer verði klár fyrir leikinn gegn Augsburg
Mynd: Getty Images
Topplið Bayern München mætir Augsburg klukkan 19:30 í kvöld en hér fyrir neðan má sjá alla leiki helgarinnar í þýsku deildinni.

Bayern hefur verið á flugi undir stjórn Vincent Kompany og er sem stendur með fimm stiga forystu á toppnum.

Óvissa er um markvarðarstöðuna fyrir leikinn í kvöld. Manuel Neuer er að glíma við smávægileg meiðsli og þá er Sven Ulreich frá vegna meiðsla. Bayern á hins vegar öflugan þriðja markvörð í Ísraelanum Daniel Peretz og gæti farið svo að hann verði í rammanum á Allianz-Arena í kvöld.

Á morgun mætast Borussia Dortmund og Freiburg á meðan Stuttgart spilar við Bochum. Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen spila við Heidenheim á meðan sjóðandi heitt lið Eintracht Frankfurt mætir Werder Bremen.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
19:30 Bayern - Augsburg

Laugardagur:
14:30 Leverkusen - Heidenheim
14:30 Stuttgart - Bochum
14:30 Dortmund - Freiburg
14:30 Hoffenheim - RB Leipzig
14:30 Wolfsburg - Union Berlin
17:30 Eintracht Frankfurt - Werder

Sunnudagur:
14:30 Holstein Kiel - Mainz
16:30 Gladbach - St. Pauli
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 10 8 2 0 33 7 +26 26
2 RB Leipzig 10 6 3 1 15 5 +10 21
3 Eintracht Frankfurt 10 6 2 2 26 16 +10 20
4 Leverkusen 10 4 5 1 21 16 +5 17
5 Freiburg 10 5 2 3 13 11 +2 17
6 Union Berlin 10 4 4 2 9 8 +1 16
7 Dortmund 10 5 1 4 18 18 0 16
8 Werder 10 4 3 3 17 21 -4 15
9 Gladbach 10 4 2 4 15 14 +1 14
10 Mainz 10 3 4 3 15 14 +1 13
11 Stuttgart 10 3 4 3 19 19 0 13
12 Wolfsburg 10 3 3 4 19 18 +1 12
13 Augsburg 10 3 3 4 13 20 -7 12
14 Heidenheim 10 3 1 6 13 15 -2 10
15 Hoffenheim 10 2 3 5 13 19 -6 9
16 St. Pauli 10 2 2 6 7 12 -5 8
17 Holstein Kiel 10 1 2 7 12 25 -13 5
18 Bochum 10 0 2 8 10 30 -20 2
Athugasemdir
banner