Pep Guardiola hefur samþykkt að skrifa undir nýjan samning við Manchester City samkvæmt heimildum The Athletic.
Samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið en The Athletic segir að hann hafi samþykkt að skrifa undir eins árs samning með möguleika á framlenginu um ár til viðbótar.
Man City mun staðfesta fréttirnar á næstu dögum.
Ef Guardiola verður áfram hjá City næstu árin verður hann þar í tíu ár en hann tók við liðinu árið 2016 og hefur unnið 18 titla með enska liðinu. Sex sinnum unnið úrvalsdeildina og vann Meistaradeildina í fyrra í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Athugasemdir