Brasilíski sóknarmaðurinn Endrick mun ekki yfirgefa Real Madrid í janúar en sögusagnir hafa verið um að hann færi á láni.
Fabrizio Romano segir að þessar sögur séu ekki sannar en hann var m.a. orðaður við Southampton.
Real Madrid vill ekki lána hann í janúar og leikmaðurinn sjálfur vill vera áfram.
Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri síðan hann gekk til liðs við spænska félagið frá Palmeiras í heimalandinu í sumar. Hann hefur komið við sögu í tíu leikjum í deild og Meistaradeild en aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu.
Athugasemdir