Ágúst Eðvald Hlynsson og Ægir Jarl Jónasson voru báðir í byrjunarliði AB Kaupmannahafnar þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Hellerup í C-deildinni í Danmörku í kvöld.
AB náði forystunni tvisvar í leiknum en Hellerup kom alltaf til baka og lokatölur því 2-2. Ágúst var tekinn af velli eftir rúmlega hálftíma en Ægir spilaði allan leikinn.
AB er með 12 stig í 6. sæti deildarinnar eftir níu umferðir.
Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi Kolding sem tapaði gegn Odense í kvöld en hann fékk að líta rauða spjaldið fyrr í þessum mánuði.
Kolding er með 13 stig í 8. sæti eftir 11 umferðir í næst eefstu deild í Danmörku en Odense er á toppnum með 31 stig en liðið féll úr efstu deild á síðustu leiktíð.
Athugasemdir