Barcelona hefur farið frábærlega af stað á nýju tímabili í efstu deild spænska boltans eftir að Hansi Flick tók við félaginu í sumar.
Liðið er búið að sigra sjö af sjö leikjum í deildinni hingað til og er Flick þriðji þjálfarinn í sögu félagsins til að afreka þetta. Hann er aðeins tveimur sigrum frá því að bæta núverandi met Gerardo Martino sem vann átta fyrstu deildarleikina eftir að hann tók við félaginu 2013.
Ernesto Valverde vann einnig sjö fyrstu leiki sína við stjórnvölinn þegar hann tók við 2017.
Barcelona trónir í dag á toppi spænsku deildarinnar með 21 stig úr 7 umferðum og markatöluna 23-5.
Athugasemdir