Ísak Bergmann Jóhannesson var hetja Dusseldorf þegar hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótatíma gegn Greuther Furth á útivelli í næst efstu deild í Þýskalandi í kvöld.
Staðan var 1-1 í hálfleik en á lokamínútu leiksins fékk Dusseldorf vítaspyrnu og Ísak skoraði úr henni af miklu öryggi og tryggði liðinu sigurinn.
Fagnið hans vakti athygli en hann fagnaði eins og fyrrum liðsfélagi sinn hjá Dusseldorf, Christos Tzolis, er vanur að fagna. Tzolis var á láni hjá þýska félaginu frá Norwich á síðustu leiktíð en var keyptur til Club Brugge í sumar.
Hann skoraði 22 mörk í 30 leikjum í deildinni fyrir Dusseldorf og var því gríðarlega mikilvægur fyrir liðið sem var hársbreidd frá því að komast í efstu deild á síðasta ári.
Ísak og Tzolis voru mjög nánir hjá Dusseldorf, komu á svipuðum tíma til félagsins og voru herbergisfélgar.
???? Ísak B. Jóhannesson (f.2003)
— Áhugaverðar staðreyndir um íslenska knattspyrnu (@OReyndir) September 27, 2024
???????? Düsseldorf
???? Greuther Fürth
???????? #Íslendingavaktin pic.twitter.com/QnKfoXDueR
???? — Ísak Bergmann Jóhannesson does Christos Tzolis’ signature celebration after his match winner. #F95 ?? pic.twitter.com/jxK9kLSO6H
— ???????????????? ???????????????????????????????????????? ???? (@KingVasilopita) September 27, 2024