Tottenham spilar við aserska stórveldið Qarabag í fyrstu umferð í deildarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Leikurinn fer fram á hátæknilegum Tottenham Hotspur Stadium en fresta þurfti upphafsflautinu um hálftíma vegna seinkomu gestanna í liði Qarabag.
Leikmenn Qarabag voru ekki mættir á völlinn fyrr en stundarfjórðungi fyrir upphafsflautið og því ákveðið að fresta leiknum um 35 mínútur.
Í dag hefur verið mjög erfiður dagur fyrir samgöngur og alla yfirborðsumferð í London. Talið er að meirihluti áhorfenda séu enn ekki komnir á völlinn vegna alvarlegra tafa í samgöngukerfi höfuðborgarinnar.
Athugasemdir