Liverpool tilbúið að reyna við Rodrygo ef Salah fer - Everton horfir til Sarri - Man Utd mun reyna aftur við Branthwaite
   fim 26. september 2024 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Barcelona hefur áhuga á Durán
Mynd: Aston Villa
Spænska stórveldið Barcelona hefur áhuga á kólumbíska framherjanum Jhon Durán sem leikur fyrir Aston Villa og hefur byrjað nýtt tímabil gríðarlega vel.

Durán er aðeins 20 ára gamall og er búinn að skora 5 mörk í 7 leikjum með Aston Villa á nýju tímabili, þrátt fyrir að hafa aðeins einu sinni verið í byrjunarliðinu.

Durán hefur hingað til verið notaður sem ofurvaramaður og hafa öll mörkin hans á tímabilinu reynst vera sigurmörk, nema í 3-1 sigri gegn Wolves þar sem Durán skoraði þriðja mark Aston Villa.

Börsungar eru í leit að framherja sem gæti lært af Robert Lewandowski og leyst hann af hólmi þegar sá tíma ber að garði, en hinn 36 ára gamli Lewandowski er þegar búinn að skora sjö mörk í sjö leikjum á deildartímabilinu.

Unai Emery þjálfari Aston Villa hefur miklar mætur á Durán og hefur félagið enga ástæðu til þess að selja hann.
Athugasemdir
banner
banner