Selfoss vann Fótbolti.net bikarinn eftir sigur á KFA í úrslitum á Laugardalsvelli í kvöld. Sesar Örn Harðarson var maður leiksins en hann lagði upp tvö mörk og skoraði eitt. Sesar mætti í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 KFA
„Mér líður stórkostlega, rosaleg stemning. Ég byrjaði frekar hægt, var að koma mér í gang. En í seinni hálfleik gekk allt upp."
Hvernig var að skora á Laugardalsvelli?
„Fyrir framan allt þetta fólk, það var rosaleg stemning. Ég get ekki lýst þessu, þetta var geggjað".
Selfoss vann tvöfalt, 2. deildina og Fótbolta.net bikarinn.
„Þetta var góður endir á tímabilinu. Tveir bikarar og Lengjudeldin á næsta tímabili. Ég er mjög spenntur fyrir því, við eigum góðan séns í þeirri deild. Við erum með sterkt lið."
Selfyssingar kunna að fagna vel og innilega.
„Ætli það verði ekki Miðbar og gott djamm þar örugglega."
Viðtalið við Sesar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir