Bikarmeistarinn Hrannar Björn Steingrímsson ræddi við Fótbolta.net rétt eftir að hann var búinn að lyfta Mjólkurbikarnum síðasta laugardag. Hann var spurður út í skrokkinn í viðtalinu eftir leikinn.
Hrannar er 32 ára bakvörður sem er hluti af sterkasta byrjunarliði KA. Hann hefur komið við sögu í 18 deildarleikjum af 23 á tímabilinu. Hann meiddist í 9. umferð og missti af næstu leikjum þar á eftir. Frá því að hann snéri til baka úr meiðslunum hefur hann einungis tvisvar spilað allar mínúturnar.

„Ég sleit krossband árið 2021. Ég sagði í viðtali í fyrra að ég yrði örugglega aldrei 100% heill aftur [út af þeim meiðslum]. Ég er búinn að spila mikið í sumar og það tekur á skrokkinn. Það eru hliðarmeiðsli sem ég er að fá; ég er stífur í mjöðmum og það leiðir í annað. Ég er ekki eins og ég á að mér að vera, ég veit það og ég verð það ekki. Dóri sjúkraþjálfari segir alltaf að ég verði að hugsa betur um mig, sem er hárrétt. Ég verð 33 ára á næsta ári og ég skal lofa þér og Dóra núna að ég mun hugsa vel um mig í vetur þannig ég geti spilað meira en 80 mínútur í úrslitaleiknum á næsta ári," sagði Hrannar.
Halldór Hermann Jónsson, Dóri, er sjúkraþjálfari KA. Viðtalið sem Hrannar vísar í má nálgast hér neðst.
Hrannar lék ekki með KA gegn HK í 1. umferð neðri hlutans í Bestu deildinni. Hann er með skráðan samning út næsta tímabil.
Athugasemdir